Vert að hugleiða.....

........BROSIÐ

Spakmæli vikunnar:

Ég gerði merkilega uppgötvun í dag. Ég uppgötvaði að bros er
jafnsmitandi og flensa.
Það brosti til mín alókunnugur maður og ég brosti á móti og hélt svo
bara áfram að brosa.
Ég labbaði fyrir næsta horn þar sem ég mætti öðrum ókunnugum manni.
Þegar hann sá mig brosa, brosti hann á móti og gekk svo brosandi í burtu.

Þá laust niður hjá mér þessari staðreynd, ég hafði smitað hann.
Guð veit hvað hann hitti marga og smitaði þá. Ég fór að hugsa um þetta
bros og skildi þá hversu mikils virði það er.
Eitt lítið bros eins og mitt, gæti breiðst út um heimsbyggðina.
Svo ef þú finnur að þú ert að bresta í bros, ekki halda aftur af því.
Komum af stað faraldri sem fyrst, stefnan er að smita allan heiminn.

BROSTU .              Hafið það gott um helgina elskurnar.Knús á ykkur öll.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 25.10.2008 kl. 01:33

2 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Tökum BROSANDI á móti heiminum,deginum,bara öllu humm

Guðný Einarsdóttir, 25.10.2008 kl. 16:11

3 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Guðjón H Finnbogason, 25.10.2008 kl. 20:17

4 Smámynd: Hrafnhildur Björk Jónsdóttir

Bros til baka

Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 27.10.2008 kl. 13:55

5 Smámynd: Linda litla

ég er alltaf brosandi, vonandi smita ég út frá mér.

Linda litla, 27.10.2008 kl. 22:51

6 identicon

hæ lóa, skemmtileg síðan þín, enda ert þú skemmtilega kona ;-) það var ekki hægt annað en að brosa eftir þessa færslu.

kv, Guðrún

ps sjáumst í bikkinu

Guðrún Elín (IP-tala skráð) 2.11.2008 kl. 13:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband