Hummmm...skildi þetta geta...

...fittað við einhvern...hugsið um það um leið og þið lesið...Woundering...ég fann nokkra samnefnara..


>Lesið þetta og hugsið um fólkið í þessum merkjum um leið.
>
>Hvað þarf margar hrúta til að skipta um ljósaperu?
>Bara einn, en það þarf margar perur.
>
>Hvað þarf mörg naut til að skipta um ljósaperu?
>Ekkert, nautunum finnst ekkert gaman að breyta neinu.
>
>Hvað þarf marga tvíbura til að skipta um ljósaperu?
>Tvo líklega. Þeir bíða helgarinnar, en það endar á því að ljósaperan er
>miðja athyglinnar, talar frönsku og skín uppáhalds lit hvers og eins sem
>kemur inní herbergið.
>
>Hversu marga krabba þarf til að skipta um ljósaperu?
>Bara einn, en hann þarf svo að fara í meðferð til að komast yfir
>atburðinn.
>
>Hversu mörg ljón þarf til að skipta um ljósaperu?
>Ljón skipta ekki um perur, í mesta lægi heldur hann henni á meðan
>heimurinn snýst í kringum hann.
>
>Hversu margar meyjur þarf til að skipta um ljósaperu?
>Sjáum nú til: eina til að undirbúa peruna, aðra til að skrifa niður
>hvenær ljósaperan sprakk og hvenær hún var keypt, aðra til að ákveða
>hverjum er um að kenna að peran sprakk, tíu til að þrífa húsið á meðan
>hinir skipta um peruna.
>
>Hversu margar vogir þarf til að skipta um ljósaperu?
>Í raun veit ég það ekki.. það fer soldið eftir hvenær peran hætti að
>virka. Kannski nægir einn ef þetta er bara venjuleg ljósapera, tvo ef
>hann veit ekki hvar á að kaupa nýja. Og hver væri nú besta peran? Mikið
>af pælingum og áhyggjum yfir því.
>
>Hversu marga sporðdreka þarf til að skipta um ljósaperu?
>Og hver veit það? Afhverju vilji þið vita það? Eru þið kannski lögreglumenn?
>
>
>Hversu marga bogamenn þarf til að skipta um ljósaperu?
>Sólin skín, það er gott veður, allt lífið framundan og þið hafið
>áhyggjur af einhverri ljósaperu???
>
>Hversu margar steingeitar þarf til að skipta um ljósaperu?
>Enga. Steingeitur skipta ekki um ljósaperur því eftir góðar og
>athyglisverðar samræður mun ljósaperan skilja að það er miklu
>skynsamlegra að hún skipti um sig sjálf.
>
>Hversu marga vatnsbera þarf til að skipta um ljósaperu?
>Það koma helling af vatnsberum í keppni um hver þeirra er sá eini sem
>getur gefið heiminum ljós aftur.
>
>Hversu margar fiska þarf til að skipta um ljósaperu?
>Afhverju, fór ljósið?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Þetta er bara snilld.Og taktu eftir þvíhvað "steingeitin" hugsar rökrétt LOL

Linda litla, 17.2.2008 kl. 01:33

2 Smámynd: Sporðdrekinn

Af hverju eigum við að hugsa um þetta?

Þarft þú að láta skipta um peru hjá þér?

Ef að ég les þetta þá segi ég þér ekki frá því, þér kemur það nefnilega ekki við

Annars þetta passar við alla sem að mér datt í hug. Sniðugt að Linda skuli minnast á steingeitina, mamma er steingeit og ég sver að svona virkar þetta

Sporðdrekinn, 17.2.2008 kl. 02:01

3 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

hehe...ok..sorrý......

Agnes Ólöf Thorarensen, 17.2.2008 kl. 02:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband