uss bara.....!!!!!

Maður kemur inn í banka og eftir að hafa beðið í röð í tuttugu mínútur án þess að hafa þokast nokkuð áfram að ráði fer hann til þjónustufulltrúa og segir, "heyrðu kelling, ég er með ávísun sem að ég þarf að leggja inn, en það fucking kemur ekki til mála að ég bíði eina helvítis mínútu í viðbót í þessari andskotans röð."
"Heyrðu nú mig," segir þjónustufulltrúinn, "ég líð ekki svona munnsöfnuð hérna í þessum banka."
"Jæja fyrirgefðu, en þessi djöfulsins ávísun er ekki að fá neina helvítis vexti á meðan einhver frussutussa eins og þú röflar yfir því hvernig ég tala."
"Herra minn, ég þarf ekki að sitja undir svona svívirðingum."
"Jæja kallaðu þá bara í helvítis bankastjórann, ég meina hvaða fucking kjaftæði er þetta eiginlega?"
Bankastjórinn er kallaður til og spyr þegar að hann kemur, "hvað virðist vera vandamálið?
"Konan segir, "þessi maður eis yfir mig svívirðingunum og ég vil bara ekki þurfa að sitja undir þessu."
Þá segir maðurinn, "Hey, það eina sem ég þarf að gerahér í þessum djöfulsins skíta banka er að leggja inn þessa 500 milljón króna helvítis ávísun."
Bankastjórinn lítur á ávísunina og svo á manninn og segir, "og þessi helvítis tík vill ekki hjálpa þér."

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sporðdrekinn

FRUSSS

Sporðdrekinn, 30.5.2008 kl. 04:09

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Einmitt, svona virkar þetta.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 30.5.2008 kl. 05:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband