Smá af mér í.......

......fríi.......það er ekki alltaf frí í fríi eða þannig...!!!!!!!!!

Rúm vika búin af fríinu og við búin að fara í sumarbústað í viku í Munaðarnes í Borgarfirði.Það var ósköp gott fyrir alla enda var lífinu tekið rólega með pottaferðum og smá ferðum um nágrennið.Helgin var náttulega alveg æðisleg hérna hjá okkur sunnanlands,alveg steikjandi hiti og sól þannig að það var tekin smá rispa á garðinum,slegið og snyrt aðeins og rabarbarinn rifinn upp,skorinn og soðinn í sultu og graut.Enginn smá myndarskapur það hjá manni enda  fyllist maður bara eldmóði og svei mér þá hvort maður varð bara ekki dálítið ofvirkur líka..hehe...en það er allt af hinu góða.Svo er farið að styttast í brúðkaup Frumburðarins en það er 9.ágúst nk.Það þarf ýmislegt að gera fyrir það en við "Tengdamömmurnar"verðandi stóðum sveittar og streitta í allan gærdag og fram á kvöld við Sörugerð og kransabakstur,það þarf nú dáldinn slatta í heilt brúðkaup með á annað hundrað gesti en terturnar ætlum við ekki að baka fyrr en í vikunni fyrir brúðkaup.Það er nú svo sem ýmislegt annað sem þarf að græja en ég ætla að renna í Höfuðborgina í fyrramálið og reyna að finna einhverja leppa á mig og tvíbburnar mínar til vera í og svo að reyna að spá í brúðargjöf líka ef ég sé eitthvað gáfulegt.En allavega nóg að snúast í sumarfríinu sínu,engin spurning það.Hafið það gott elskurnar mínar... Big Hug 






« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sporðdrekinn

Gangi þér vel í stússinu þínu

Sporðdrekinn, 23.7.2008 kl. 01:50

2 Smámynd: Hrafnhildur Björk Jónsdóttir

Gangi þér vel Lóa mín og gott að sjá blogg frá þér aftur, saknaði þín. Knús að norðan

Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 23.7.2008 kl. 06:41

3 identicon

Gangi þer vel , og til hamingju með brúðkaup frumburðarins

Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 01:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband