Færsluflokkur: Bloggar

Í tengslum við umgengni heimilisfólksins......

 Dag nokkurn þegar maðurinn kemur heim frá vinnu sinni kemur hann að öllu
> gjörsamlega á hvolfi í húsinu..
> > Börnin hans 3 voru úti, ennþá í náttfötunum að leika sér í drullunni með
> nestisboxin tóm og umbúðapappír var stráð út um alla lóðina.
> > Dyrnar voru opnar á bíl frúarinnar, sama sagan var með útidyrnar á
> > húsinu..
> > Þegar hann kom inn í forstofuna blasti við honum enn meiri óreiða. Lampi
> hafðu verið felldur um koll, gólfmottan var kuðluð við einn vegginn. Í
> næsta herbergi var teiknimynd í TV og á hæsta styrk og leikföng af öllum
> stærðum og gerðum voru dreifð um allt herbergið.
> > Í eldhúsinu .. diskarnir flæddu út úr vaskinum.. morgunmaturinn var
> sullaður út um allt borð.. hundamatur út um allt gólf..
> > brotið glas var undir borðinu, smá sandhrúga var við bakdyrnar . Hann
> hraðaði sér upp stigann, troðandi á leikföngunum og fatahrúgum í leit að
> konu sinni.
> > Hann hafði áhyggjur af því hvort hún hefði orðið veik eða eitthvað
> alvarlegt hefði komið fyrir.
> > Hann fann hana hangsandi inni í svefnherbergi, ennþá í krumpuðum
> náttfötunum að lesa smásögu.
> > Hún leit brosandi á hann og spurði hvernig dagurinn hefði verið. Hann
> leit á hana og spurði, 'Hvað skeði hér í dag?'
> > Hún leit aftur brosandi á hann og svaraði:
> > 'Þú spyrð mig á hverjum degi þegar þú kemur úr vinnunni hvað ég hafi
> eiginlega verið að gera í allan dag?'
> > 'Já' segir hann tortrygginn.
> > Hún svarar. 'Jæja, í dag gerði ég ekkert!!!'

Lýsingin er dálítið gróf en hver kannast ekki við eitthvað frá sjálfum sér í þessari frásögn,það geri ég allavega...en þið..????


Ja,hérna.....

.....það er ýmist reiðhjól eða garðbekkir,það er alveg magnað hvað fólki dettur í hug til að lífga upp á kynlífið hjá sér. Crazy 






mbl.is Ýmislegt reynt til þess að fá fullnægingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ok...það er þar sem þeir enda....það hlaut að vera...

Verkfræðingur dó og fór til himna, þar stendur Lykla-Pétur og neitar að hleypa honum inn, þannig að verkfræðingurinn er sendur til helvítis. Nokkru síðar attar Lykla-Pétur á að þetta voru mistök og hringir í Satan og krefst þess að hann sendi manninn upp aftur. Ekki séns segir Satan, síðan við fengum verkfræðing er búið að setja upp frábæra loftkælingu, koma upp nýjum salernum og lyftum. Það séu bara fyrstu skrefin, verkfræðingurinn sé á fullu að gera þetta vistlegra”. Guð verður alveg æfur og segist ætla að fara í mál við Satan. Satan fer þá í hláturskast og spyr guð: “Og hvar ætlar þú að finna lögfræðing?”


Úbssss.....Mamma og pabbi....!!!!!!!!!!!!!!!

Nonni litli opnaði dyrnar að hjónaherberginu og sá að pabbi lá á bakinu og mamma hossaði sér uppi á honum. Um leið og mamma kom auga á Nonna hætti hún, klæddi sig og fór fram. Þegar Nonni sá hana spurði hann “Hvað voruð þið pabbi eiginlega að gera?”

Mamman alveg vandræðaleg og ekki tilbúinn að útskýra þetta fyrir Nonna.  “Já”, segir hún, “Þú veist hvað hann pabbi þinn hefur stóran maga… og ég þarf stundum að hjálpa honum við að fletja hann niður!”

“Það er algjör tímasóun hjá þér”, sagði Nonni litli, alltaf þegar þú ferð í Kringluna á fimmtudögum þá kemur konan í næsta húsi, fer niður á hnén og blæs pabba upp aftur!”


Þetta var svo....

....yndislegur dagur....I love it....

DSC 0021Þau voru svo falleg og flott að það var alveg æðislegt.Set hérna inn nokkrar myndir svo þið getið dæmt um það sjálf en auðvitað er ég hlutdræg.Fallegu krakkarnir mínir

Dagurinn var í alla staði frábær og brúðhjónin alsæl eins og sjá má.DSC 0153Maturinn var alveg rosalega vel heppnaður og góður og terturnar og kaffið á eftir mjög gott.Stelpurnar mínar

Þarna eru allar stelpurnar mínar fimm saman,svo flotta og fínar og að endingu er mynd af okkur öllum saman....STÓRFJÖLSKYLDAN....Fjölskyldan mín

Knús á línuna

               Kisses 






Einn góður svona af því að það snýst......

......allt um brúðkaup hjá mér......

50 ára brúðkaupsafmælið

Það var á 50 ára brúðkaupsafmælinu, gömlu hjónin ákveða að endurlífga ástina og njóta ásta eins og í gamla daga.  Því miður gekk þetta ekki sem skildi, en kallinn dó ekki ráðalaus. Hann batt því reglustiku um liminn og skellti inn.  Þá heyrist annar eggjastokkurinn segja við hinn: “Ýmislegt hefur á daga mína drifið, en aldrei hafa þeir áður komið á líkbörum”.


Mynd af....

....verðandi Brúðhjónum...InLove100_3932

Flottu krakkarnir mínir.

 Big Hug

 






BrideGroom


Og nú er.....

annasöm helgi framundan.....

Já,nú er að koma að því maður verði lögleg tengdamamma þá getur maður loksins farið að sýna sitt rétta andlit þegar maður á orðið löglegan tengdason....hehe....nei ég er auðvitað fíflast nú er komið að því að frumburðurinn minn gengur í hjónaband en er á laugardaginn 09.08.08 kl 17.Það er auðvitað búinn að vera dálítill undir búningur fyrir það en annars hafa þau sjálf séð um allt skipulag og pælingar.Við verðandi "Tengdamæður "höfum verið að dunda okkur svolítið við bakstur þessa vikuna og ætlum við að gera terturnar klárar á morgun.Ég ætla að fara í fyrramálið og láta lappa svolítið upp á andlitið á mér,láta rífa af mér vörturnar og veiðihárin og sjá svona hvort ég verð ekki aðeins skárri útlit í framan.Svo er æfing í kirkjunni á morgun líka en stelpurnar eiga að vera brúðarmeyjar og hringaberar þannig að það verur að fara yfir þetta með mannskapnum.Læt þetta duga í bili en segi ykkur betur frá þessu eftir brúðkaup en þangað til vona ég að þið eigið góða helgi.Knús á línuna.... Bride & Groom 

 








Jæja...nú er.....

.....framhald..........

AflinnJá,einhver hafði orð á því við mig að hann vildi sjá aflann og hér er hann,alveg vel ætilegur ekki spurning.Þorskur,ufsi og ýsa.Við vorum alveg ankoti efnileg við þetta í aðgerðinni eins og þið sjáið.Systur með fisk

Annars fannst mér þessi nú bestur en hann var á milli 10-11 kg100_5966,ekkert smá flikki....en flottur.

Stelpurnar voru alsælar að pjakkast í þessu með okkur eins og sést.Ég ætla að reyna að fara aftur að ári og vera lengur en þrjá daga,það er bara allt of stutt til að stoppa.

 

 


Komin heim aftur....

100_5668Jæja,þá er maður komin heim aftur úr yndislegu ferðalagi norður á Strandir eða nánar tiltekið á Gjögur í Árneshrepp.Alltaf finnst mér jafn notalegt að koma þangað og hitta fólkið mitt.Myndin hérna til hliðar er af Tvíbura stelpunum okkar þeim Svandísi og Jónu en við stöldruðum við á Hólmavík til að leifa mannskapnum að teygja aðeins úr sér.Anna Lísa

Eins og sést á myndunum þá var þvílík kátína að losna úr bílnum enda var lítið mál að renna síðustu 85 km þó vegurinn væri dálítið hlykkjóttur.Annars fór Veiðileysuhálsinn hálf illa í Önnu garminn og það varð gos í Reykjafirði...(100_5952oojjj)..en það bjargaðist allt saman,fötin og draslið var bara skolað upp úr sjó...og nei..hehe..Anna slapp við að vera skoðuð upp úr sjó en hún varð eins og ný sleginn túskildingur eftir að vera búin að æla öllu sem hún gat nema innyflunum.Annars vorum við frekar óheppin með veður þessa daga sem við vorum,frekar kalt og ýmist rigning eða úði og leiðinda rok.Mér tókst nú samt að væla það út hjá honum frænda mínum elskulegum að fara með mig fram á sjó.Það var auðvitað alveg toppurinn á ferðinni fyrir mig.Það er fátt sem ég veit skemmtilegra en að komast á skak.Þó að það væri belgings rok þá veiddum við nú alveg slatta sem duga mér vel fram á veturinn.Frúin sjálf...GjögurSegi ykkur meira seinna og set inn fleiri myndir.Hafið það gott gullin mín.Knús á línuna.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband