Allir orðnir hressir....
11.2.2008 | 23:16
...nema ég..uhu..Eins og það sé nú ekki komið nóg af pesta standi,loksins þegar börnin eru orðin þokkalega hress þá bara smellur maður bara sjálfur kylliflatur á andlitið í einu stóru mígrenikasti og klingir svo út með svo miklu kvefi að maður má þakka fyrir að vakna bara ekki kafnaður og eða bara dauðurað morgni..arg...ég er alveg búin að fá nóg af þess...ojbjakk..Annars er þessi umræða um borgina að verða svolítið leiðigjörn,af hverju getur hann Villi bara ekki sagt eins og er að hann þekki ekki muninn á sannleika og lygi heldur en að vera að standa í þessu orðaskaki fram og til baka svo veit hann ekkert við hvern hann er að tala ,er það fyrrverandi borgarlögfræðingur eða núverandi borgarlögfræðingur eða var það kannski bara enginn lögfræðingur eða var það öskukallinn eða skúringakonan eða hver var það aftur ...var það kannski enginn,ég skal ekki segja.Þetta er bara orðið leiðinleg umræða og stagl um sömu hlutina aftur og aftur.Almáttugur minn ....ég er að verða eins..úff..ég held að ég skelli nú bara í mig einum bolla af Panodil hot og komi mér bara í bælið og að sofa í hausinn á mér,ég held að ég sé komin með hor upp í heila,en sú geðvonska....Hafið það gott elskurna þangað til næst..
Athugasemdir
Ég hló mikið af öskukallinum og skúringakjéllingunni LOL Það er alltaf húmor í þér, það breytist ekkert ekkert.
Hafðu það gott Lóa mín og láttu þér batna, ég vona að þú vaknir ekki köfnuð í fyrramálið hahahahaha
Linda litla, 11.2.2008 kl. 23:21
Ég hef enga skoðun á þessu rugli sem er í gangi...
Góða nótt og láttu þér batna.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 11.2.2008 kl. 23:22
Heyrðu! flott sjónarhorn á borgarmálin, ég var í hláturskrampa. Lá í kvefi FJÓRA daga sjálf í síðustu viku og Hugo sem var að flísaleggja eldhúsið hjá mér, lagðist líka, hann var fyrst að fúga í dag. Shitturinn maður, ég meina sko það er allt búið að vera á kafi í ryki í meira en tíu daga og ég sem er nú reyndar alls ekki með neitt tuskuæði, alveg að krepera. Eins gott að við höfum næstum búið niðri í íþróttahúsi. he he
sjáumst hressar á kóræfingu
Guðrún Jónína Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 23:42
Úfff, ég gerði þetta um daginn var inni í heila viku með veik börn og lá (já ok, glætan að ég hafi "fengið" að liggja) svo sjálf í viku. Hér var það hiti og kvef.
Ég vona að þér líði betur á morgun, eða... í dag á þínum tíma
Sporðdrekinn, 12.2.2008 kl. 03:35
Gangi þér vel að láta þér batna
Anna Gísladóttir, 12.2.2008 kl. 09:07
Sem betur fer búum við ekki í borginni,við búum bara á Hellu assgoti gott Láttu þér batna kelli mín
Guðný Einarsdóttir, 12.2.2008 kl. 16:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.