TILKYNNING...!!!!!!!!!!!!


Borist hefur tilkynning um að nýtt frumefni hafi fundist *"FRUMEFNIÐ KARL*"


Frumefnið finnst: Á sófum, á kaffihúsum, börum, bjórkrám, á öðrum endanum á vindli eða veiðistöng. Sjaldan þó nálægt börnum.


Eðlisþyngd : 70-140 kg. Og er breiðast um miðjuna.


Eðliseiginleikar : Þenst út í nálægð peninga og valds, skreppur saman í grennd við ryksugu og gólfskrúbba, fuðrar upp við strokur og hól, slokknar á við umræður um jafnrétti og kvenfrelsi. Þó ósjálfbjarga án kvenna.


Efniseiginleikar: Dregst að fokdýrum dauðum hlutum, tækjum og tólum.

Ofsafengin viðbrögð við skort á ummönnun og eftirtekt þ.e. ósjálfbjarga án kvenna.


Notkun: Nauðsynlegt (ennþá) til æxlunar en ekki til teljandi gagns að öðru leyti.


Hristist við notkun.

Varúð: Getur eitrað líf kvenna ef þær eru ekki á verði.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sporðdrekinn

Sporðdrekinn, 1.6.2008 kl. 16:24

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Gunnar Helgi Eysteinsson, 1.6.2008 kl. 17:54

3 Smámynd: Linda litla

Held að ég hafi ´seð þetta fyrirbæri.

Linda litla, 2.6.2008 kl. 18:51

4 Smámynd: Hrafnhildur Björk Jónsdóttir

hmm nokkuð gott

Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 3.6.2008 kl. 13:21

5 identicon

Góður þessi og nokkuð til í þessu

Dagrún (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 23:39

6 Smámynd: Gunnar Gunnarsson

 Kannast við svona kvikindi.

Gunnar Gunnarsson, 4.6.2008 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband