Þetta er allt spurning um aðferðarfræðina..!!!!!!

> Megrun fyrir karlmenn
>
> Maður hringir í fyrirtæki og pantar hjá þeim "misstu 5 kg á 5 dögum"
> pakkann.
>
> Daginn eftir er barið á dyrnar hjá honum og fyrir utan stendur íturvaxin 19
> ára snót í engu nema Nike hlaupaskóm. Um hálsinn á henni hangir skilti sem á
> stendur "Ef þú nærð mér, þá máttu eiga mig".
>
> Hann lætur ekki segja sér það tvisvar og stekkur á eftir henni. Eftir nokkra
> kílómetra er hann orðinn móður og másandi og gefst upp. Sama stúlkan mætir á
> þröskuldinn hjá honum næstu 4 dagana og það sama gerist í hvert skipti. Á
> fimmta degi vigtar félaginn sig, og viti menn, hann hefur misst 5 kg.
>
> Hæstánægður með árangurinn hringir maðurinn aftur í fyrirtækið og pantar hjá
> þeim
> "misstu 10kg á 5 dögum" pakkann.
>
> Næsta dag er bankað á dyrnar og fyrir utan stendur einhver sú fallegasta og
> kynþokkafyllsta kona sem hann hefur á ævinni séð. Hún er eingöngu klædd í
> Reebok hlaupaskó. Um hálsinn á henni hangir skilti sem á stendur "Ef þú nærð
> mér, þá máttu eiga mig".
>
> Eins og elding tekur hann á rás á eftir skvísunni. Hún er auðvitað í
> fantaformi og þó hann reyni sitt besta nær hann henni ekki. Næstu fjóra daga
> heldur þessi rútína áfram og hann kemst smám saman í betra form. Á fimmta
> degi vigtar hann sig og sér til ómældrar gleði hefur hann misst 10 kg.
>
> Hann ákveður að leggja allt í sölurnar og hringir og pantar "misstu 25 kg á
> 7 dögum" pakkann. "Ertu alveg viss?"spyr sölumaðurinn " Þetta er erfiðasta
> prógrammið okkar"
>
> "Ekki spurning" svarar félaginn, "mér hefur ekki liðið svona vel í mörg ár".
>
>
> Daginn eftir er barið á dyrnar, og þegar hann opnar stendur risastór,
> helmassaður karlmaður fyrir utan í engu nema bleikum hlaupaskóm.
> Um hálsinn á honum hangir skilti sem á stendur "Ef ég næ þér, er rassinn á
> þér MINN!"
>
> Félaginn missti 32 kg í þeirri viku

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Góðan dag !

Treadmill

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 13.4.2008 kl. 09:31

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Gunnar Helgi Eysteinsson, 13.4.2008 kl. 09:33

3 Smámynd: Sigríður Þóra Magnúsdóttir

Góður

Sigríður Þóra Magnúsdóttir, 13.4.2008 kl. 18:49

4 Smámynd: Ein-stök

HAHAHA...  Ertu með símanumerið?

Ein-stök, 14.4.2008 kl. 00:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband