Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Ekki lýst mér á....

.....ef þetta ætlar að fara að verða eitthvað meira.... Question Mark 






mbl.is Skjálftavirni að aukast á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég á 10 ára brúðkaups afmæli í dag...

.....jjjjjeieieieieiiiiiiiii...................og þessa þrjá stúlkur eru afsprengi þess ráðahags...flott ekki satt ?

100_4210

Smá saga...!!!!!!

Sorrý stelpur og strákar...en ég er búin að vera í kasti yfir þessu.


Raunir konu sem ætlaði að skella sér í vax...   Þið eruð ekkert viðkvæmar?


Ég raka venjulegast á mér lappirnar því ég er bara of nísk til að fara
reglulega í vax til að ráða við þennan frumskóg á löppunum á mér. Síðan fór
ég í Hagkaup um helgina og sá eitthvað rosalega sniðugt vax, auðvelt í
notkun, sársaukalaust og það besta að maður á að vera laus við hárin í 4-5
vikur..... og það var á tilboði! Þannig að ég skellti mér á það.

Síðan svæfði ég börnin og fór síðan inn á bað til að byrja hreingerninguna,
ætlunin var nefnilega að koma kallinum á óvart þegar hann kæmi heim úr
ferðalaginu seinna um kvöldið. Ég tók vaxið upp úr kassanum, þetta var svona
kaldir vaxrenningar sem átti að nudda á milli handanna til að hita áður en
þeir væru settir á hárugu svæðin. Ég byrjaði að nudda renningana en sá fram
á að það myndi taka alltof langan tíma og fékk því snilldarhugmynd.
Ég lagði þá bara á borðið við hliðina á vaskinum, náði í hárblásarann, setti
hann í botn og var nákvæmlega enga stund að hita þá. Síðan setti ég þá á
leggina á mér og....... þetta var.... heitt og alls. ekki.
sársaukalaust!

En ég viðurkenni þó að ég átti von á meiri sársauka, kona sem hefur gengist
undir tvennar deyfingarlausar fæðingar og rúmlega 30 spor í hvort sinn, þolir nú
alveg að 100+ hár séu rifin upp með rótum með einum vaxstrimli. Þannig að ég
hélt áfram, kláraði lappirnar og eina rauðvínsflösku í leiðinni.

Þá fékk ég aðra brilljant hugmynd, ákvað að koma kallinum virkilega á óvart
og leyfa honum að kíkja á eina sköllótta, það myndi án efa leiða til ýmissa
skemmtilegra "æfinga". Þannig að ég athugaði með börnin, þau voru enn
sofandi, náði mér í aðra rauðvínsflösku, hitaði vaxrenning, setti annan
fótinn upp á klósettið og skellti renningnum í klofið..... og reif af. Ó MÆ
GOD!!! Ó JESÚS KRISTUR!!! ÉG SÉ EKKERT, ÉG ER BLIND, ÞVÍLÍKUR SÁRSAUKI!!!
Ég var blinduð af sársauka, sló niður hárblásarann og rauðvínsflöskuna áður
en ég náði andanum aftur. Ég hélt ég hefði gelt sjálfa mig með því að rífa
af mér hálfa píkuna! Ég þakkaði allavega fyrir að miðað við sársaukann þá
gat ekki verið eitt stingandi strá eftir.

Ég leit á vaxrenninginn. FUCK! FUCK, SHIT, FUCK! Hann. var. tómur. Ekki eitt
einasta hár á renningnum.... og ekki neitt vax heldur! HVAR VAR VAXIÐ??? Ég
leit hægt niður, hrædd við sjónina sem beið mín..... allt vaxið af
renningnum var í klofinu á mér. Ég leit til himins. WHY? Og gjörsamlega
miður tók fótinn niður af klósettinu! Mistök! ÞVÍLÍK MISTÖK! Ég gjörsamlega
heyrði píkuna og rasskinnarnar límast saman!

Ég gekk um baðherbergisgólfið algjörlega miður mín og hugsaði hvað til
bragðs skyldi taka. Hvernig get ég losnað við vaxið. Ég prófaði að toga það
af með puttunum. Ekki góð hugmynd. Ég yrði að láta það leysast upp, bræða
það á einhvern máta. Hvað bræðir vax? Mér varð litið á hárblásarann en hvarf
strax frá þeirri hugmynd þar sem mig langaði ekki til að útskýra brunasárin
á brunadeildinni niður á Borgarspítala. Vatn! Vatn bræðir vax.
Ég lét vatn renna í baðið, svo heitt að Saddam Hussein hefði kosið að nota
það til að pynda óvini sína, ég aftur á móti dró andann djúpt, gekkst undir
pyntingar sjálfviljug og settist í baðkarið.

Ég komst að nokkru sem ég hafði ekki vitað áður. Vatn bræðir ekki vax!
Neibb, 60 gráðu heitt vatn bræðir ekki vax, aftur á móti var ég nú límd föst
við baðbotninn! Heilinn fór í óverdræv, hvernig gat ég bjargað mér úr
þessari klípu? Eftir ýmsar tilraunir sem allar mislukkuðust, náði ég í Lady
rakvélina mína og ákvað að skafa vaxið af! Ef ykkur langar til að vita
hvernig það var legg ég til að þið rakið ykkur með ársgamalli vel notaðri
rakvél, notið ekki vatn né nokkurs konar sápu. Þá komist þið nálægt því!

Ég var að reyna að skafa vaxið af þegar ég kom loksins auga á bjargvættinn
minn. Hallelújah, Praise the Lord. Það fylgdi nefnilega með í pakkanum svona
vax remover. Ég hafði bara ekki tekið eftir því fyrr. Ég flýtti mér að ná í
bómull, hella slatta í og nudda yfir vaxið. ÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ! Klofið á mér brann!
Það var eins og ég hefði hellt yfir það bensíni og kveikt í! En mér var sama
því helvítis draslið virkaði. Því þoldi ég sársauka sem yfirgnæfði allan
þann sársauka sem ég hafði upplifað við fæðingarnar og gerði mig 150%
tilbúna í 10 fæðingar í viðbót.

Þegar ég var búin að hreinsa allt vaxið af skoðaði ég djásnið. Þrátt fyrir
öll ósköpin hafði ekki. eitt. einasta. hár. horfið! Ekki. eitt. einasta!!!

Þegar maðurinn kom heim var ég búin að víggirða minn helming af rúminu.....

Horfa,horfa....!!!!!!!!!!!!!!

woman.jpg is here

Getur þú giskað á hvað konan er gömul ? Haltu áfram að horfa og sjáðu breytinguna..


Merkileg pæling...getur þetta

......verið..?????  Alveg eins mundi ég halda því móðir náttúra er óútreiknanleg...
mbl.is Jarðskjálfti kann að hafa valdið flóðbylgju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auglýst eftir....

....skemmtikröftum....ætti ég að prófa að sækja um....neeee.....ætli það,ég mundi sjálfsagt flokkast undir risa dverg..bara smá pæling.
mbl.is Boðið upp á dverga í brúðkaupi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það borgar sig greinilega...

.... að vanda valið á þeim stöðum sem maður ætlar að sýna á sér bert rassgatið....og helst er að vara sig á gluggum...hehe...þetta er nú meiri vitleysan........ Moony................. No Pants Day..................... 






mbl.is Slasaðist er hann beraði rassinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumt fólk...

......er bara ekki með fulla fimm.Frown
mbl.is Ölvaður á 171 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TILKYNNING...!!!!!!!!!!!!


Borist hefur tilkynning um að nýtt frumefni hafi fundist *"FRUMEFNIÐ KARL*"


Frumefnið finnst: Á sófum, á kaffihúsum, börum, bjórkrám, á öðrum endanum á vindli eða veiðistöng. Sjaldan þó nálægt börnum.


Eðlisþyngd : 70-140 kg. Og er breiðast um miðjuna.


Eðliseiginleikar : Þenst út í nálægð peninga og valds, skreppur saman í grennd við ryksugu og gólfskrúbba, fuðrar upp við strokur og hól, slokknar á við umræður um jafnrétti og kvenfrelsi. Þó ósjálfbjarga án kvenna.


Efniseiginleikar: Dregst að fokdýrum dauðum hlutum, tækjum og tólum.

Ofsafengin viðbrögð við skort á ummönnun og eftirtekt þ.e. ósjálfbjarga án kvenna.


Notkun: Nauðsynlegt (ennþá) til æxlunar en ekki til teljandi gagns að öðru leyti.


Hristist við notkun.

Varúð: Getur eitrað líf kvenna ef þær eru ekki á verði.

og það var ekki ég......

....uhuh..... Crying 2 






mbl.is Einn með allar lottótölur réttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband