Færsluflokkur: Bloggar
Þessar....
9.4.2008 | 08:43
Til að ná athygli barþjónsins lyfti hún hægri hendinni hátt upp.
Hún var í ermalausum kjól og sást því að hún var heldur loðin undir höndum.
"Afgreiddu ballerínuna" sagði þá Jói, sem og barþjónninn gerði.
Leið svo nokkur tíma, kemur þá sama konan aftur og nær hún athygli barþjónsins á sama hátt.
"Afgreiddu ballerínuna" svaraði Jói aftur.
Barþjónninn afgreiðir konuna og spyr síðan Jóa "hvernig vissir þú að hún er ballerína".
"Það er engin nema ballerína sem getur lyft fætinum svona hátt" svarði þá Jói.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jæja...Hann er ekki alveg af BAKI.....
8.4.2008 | 08:47
![]() |
Með þrjár í takinu? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Aumingja karlinn...
7.4.2008 | 22:58
.......átti nú sennilega von á einhverju öðru.
Hún sagði ekki einu sinni góðan daginn, hvað þá til hamingju með hann. Ég hugsaði "jæja ,svona verða þá eiginkonurnar með tímanum, - krakkarnir hljóta að muna hvaða dagur er". Krakkarnir komu svo í morgunmatinn, en sögðu ekki orð. Ég lagði af stað á skrifstofuna, og leið enn verr. Þegar ég kom þangað inn kom einkaritarinn minn, Jenný, á móti mér og sagði "góðan daginn forstjóri og til hamingju með daginn". Mér leið aðeins betur, einhver mundi þó eftir afmælisdeginum mínum. Þegar komið var fram á hádegi var bankað á dyrnar hjá mér og Jenný gekk inn og sagði "Af því að veðrið er svo fallegt úti og þú átt nú einu sinni afmæli, hvað segirðu þá um að við förum út að borða, bara við tvö". "Já bara endilega" svaraði ég, þar sem þetta var það besta sem ég hafði heyrt þennan dag. Við fórum ekki á venjulega staðinn okkar, heldur aðeins út fyrir bæinn á lítinn afvikinn stað. Við fengum okkur tvo Martíni og nutum matarins reglulega vel. Á leiðinn til baka sagði Jenný "Þetta er svo fallegur dagur, þurfum við nokkuð að fara aftur á skrifstofuna?" Og ég svaraði "Nei, ekkert frekar", "Förum heim til mín" sagði hún þá. Þegar við komum þangað fengum við okkur annan Martíni, kveiktum okkur í sígarettum og létum fara vel um okkur. Eftir smá stund sagði hún "Er þér ekki sama þó ég skreppi inn í svefnherbergi og bregði mér í eitthvað þægilegra?". "Auðvitað" svaraði ég strax. Eftir um það bil sex mínútur kom hún aftur....haldandi á stórri afmælisköku....á eftir henni komu konan mín, krakkarnir, tengdaforeldrarnir og loks nokkrir vinir, allir syngjandi "hann á afmæli í dag" ......og þarna í sófanum sat ég......................og var aðeins í sokkunum !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hvað á maður...
7.4.2008 | 19:52
![]() |
Feðgin sem eiga barn saman biðja um skilning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Guð minn..
5.4.2008 | 18:34
![]() |
Myrti nýfætt barn sitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Úbbs...hehe...
5.4.2008 | 14:25
Einu sinni var stelpa að labba á ströndinni og þar sá hún allsberan kall. Hún labbaði til hans og benti á tippið á honum og sagði "hvað er þetta" þá sagði hann "þetta er öndin". "en hvað er þetta" spurði hún og benti á punginn á honum þá sagði hann "þetta er eggið". "en hvað er þetta" og benti á hárin á honum þá sagði hann "þetta er hreiðrið". svo sofnaði maðurinn á ströndinni en vaknaði skömmu síðar við ægilega kvöl. "hvað ertu að gera" öskraði kallin á stelpuna, þá sagði hún "ég var að klappa öndinni, þá hrækti hún á mig þannig að ég hálsbraut öndina, braut eggin og kveikti í hreiðrinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það er gott að hafa....
5.4.2008 | 14:21
.....ráð undir rifi hverju.
Dag einn fór maður nokkur út í garðinn sinn og sá að það var górilla uppií einu af trjánum hans. Hann stökk strax inn aftur og hringdi í
dýragarðinn. Dýragarðsmenn lofuðu að senda strax górillusérfræðing á
staðinn.
Stuttu seinna kom maður á staðinn á gömlum pallbíl. Hann kom út með stórt
prik, handjárn og haglabyssu. Á eftir honum kom mjög illilegur hundur.
"Hvað á þetta nú að þýða?" spurði húseigandinn.
"Ert þú ekki sá sem er með górillu uppi í tré?" var svarið.
"Jú, en til hvers er allt þetta dót?"
"Sko... Ég klifra upp í tréð með þetta prik. Ég pota því í apann þangað
til hann dettur niður úr trénu. Þegar hann gerir það stekkur hundurinn til
og bítur hann í eistun. Þegar apinn krossleggur handleggina til að verja
sig, þá setur þú handjárnin á hann og þar með höfum við náð í górillu."
"Allt í lagi, en til hvers er haglabyssan?"
"Já, sko... hún er til staðar ef ég dett úr trénu fyrst. SKJÓTTU ÞÁ
HELVÍTIS HUNDINN ! !"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Viðvörun á vínflöskur....
2.4.2008 | 22:55
Nú er verið að hanna viðvörunarmerki í Bandaríkjunum til að setja á áfengisflöskur. Ljósrit af því fór á flakk, svo hér
má sjá sýnishorn af því sem Bandaríkjamenn ætla hugsanlega að setja á allar vínflöskur:
1) Þú átt á hættu að dansa eins og fífl ef þú drekkur úr þessari flösku.
2) Neysla áfengis getur orðið þess valdandi að þú segir sömu leiðinlegu söguna aftur og aftur, þar til vini þína langar
mest til að berja þig.
3) Neysla áfengis getur orðið til þess að þú "þegir þlutina þvona".
4) Neysla áfengis getur komið þeirri ranghugmynd inn hjá þér að fyrrverandi elskhugar þrái að heyra í þér klukkan
fjögur að morgni.
5) Neysla áfengis getur orðið þess valdandi að þú hafir ekki hugmynd um hvar nærbuxurnar þínar eru niðurkomnar.
6) Neysla áfengis getur orðið til þess að þegar þú opnar augun morguninn eftir sjáirðu eitthvað sem vekur þér ótta
(eitthvað, sem þú getur ómögulega munað hvað heitir).
7) Neysla áfengis getur valdið því að þú teljir þig miklu laglegri, og gáfaðri en þú ert, sem getur leitt til óteljandi vandræða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þetta er allavega hugmynd...!!!!!
2.4.2008 | 22:41
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Heimur vesnandi fer..
29.3.2008 | 17:51
![]() |
Rændu búð með garðklippum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)